Blogg í ótal þáttum eftir dúk og disk

Blogg í ótal þáttum...

13.08.2008 13:55:04 / hoffa

Djofulsins

Getum ekki bloggad a mbl, thess vegna kemur thessi faersla her ad nedan og i gestabokina a mbl.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 13:53:54 / hoffa

Battles and sieges

Jaeja tha erum vid loksins komin inn a bloggid.  Eins og fram hefur komid erum vid i Exeter nuna, gerdum svakalega goda ferd til sjavarthorpsins Port Isaac.  Thangad komum vid a fostudagsmorgunn eftir athyglisverda straetoferd um ormjoa vegi Cornwallskagans.  I Port Isaac bua um 300 manns og thar eru fjorar krar.  Muna ekki allir eftir Doc Martin, vidskotailla laekninum i Portwenn?  Nu, Portwenn og Port Isaac eru einn og sami stadurinn, thaettirnir voru teknir upp i Port Isaac!  Vid skodudum husid sem var laeknastofan i thattunum, vid bordudum a veitingahusi sem var skolinn i thattunum og saum veitingastadinn sem Ian McNeice atti.  Vid lobbudum mikid um i 90 grada halla, baerinn er hengdur utan i klettaskoru, allar goturnar eru ofbodslega throngar, taeplega einbreidar, t.d. Squeez-ee-belly-Alley sem er svo throngt ad madur tharf eins og nafnid gefur til kynna ad draga inn magann til ad komast thar i gegn.  Hotelid okkar var gamalt fiskvinnsluhus sem var byggt arid 1517.  Thad var allt skakkt, oll golf hallandi og op undir hurdar, Bjossi Skula hefdi sennilega misst medvitund af ad koma tharna inn.  A fostudagskvoldinu forum vid fint ut ad borda og thegar vid komum labbandi til baka var ad byrja svaka party vid hofnina.  Vid skelltum okkur i geimid, tharna voru a ferdinni atta sjomenn fra Port Isaac, Fisherman's Friends, sem hafa gert ser thad til dundurs i morg ar ad syngja saman sjoaralog og ensk thjodlog.  Their voru storkostlegir i einu ordi sagt, sungu nidri i fjorunni, thad var eina plassid i baenum til ad halda konsert.  Their sungu thar til sjorinn var kominn svona meter fra theim a kvoldflodinu.  Folk var hid hressasta, mikid sungid og ol teigad, sprellad og klappad.  Vid keyptum disk med theim, thad verdur plotukynning i Solvangi thridjudaginn naesta kl.13.30, enginn ad maeta takk fyrir. Hvernig vaeri ad halda songskemmtun med sjourunum heima nidri i fjoru a hverju fostudagskvoldi hihihi aha thad held eg i ganni. 

Exeter er frabaer borg, ekkert mjog mikid ad skoda en her er allt til alls og visakortid adeins farid ad finna fyrir hita.  Hotelid er aedislegt, loksins kom god sturta eftir margar skelfilegar spraenur, Englendingar virdast ekki geta hannad sturtur, a einum stadnum rann thad ekki einu sinni upp i mot. 

A fostudaginn forum vid til Salisbury, sem er sidasti vidkomustadur okkar adur en vid holdum heim a leid ad fogru landi isa, og mikid verdur nu gott ad koma heim.  I Salisbury er stefnan adallega tekin a domkirkjuna og Stonehenge, sem Throstur er reyndar buinn ad skoda med Lilla fraenda sinum, en Hoffa a enn eftir ad berja storvirkid augum.  A sunnudagsmorgunn komum vid adeins vid i London og verdur farid beint a Emirates Stadium i Armoury budina godu.

Takk fyrir kommentin elskurnar, gaman ad vita af folki ad fylgjast med!  Segid hae vid kisa ef thid sjaid hann elsku litla skinnid okkar, vid soknum hans ogurlega.

Kvedjur, Marks og Spencer


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2008 16:02:39 / hoffa

Farin til Englands!

Þriggja vikna ferð um Cornwall í Englandi.  Ferðablogg á http://england.blog.is/blog/england/

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 17:58:49 / hoffa

Lag vikunnar

Ég er húkkt á þessu lagi!  Alex Turner úr Arctic Monkeys og Miles Kane úr The Rascals leiða saman hesta sína og úr verða The Last Shadow Puppets.  Frábært lag, og töff myndband.

http://youtube.com/watch?v=XGV8xCkpXjE

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 15:51:15 / hoffa

Úrslitin nálgast.....

Nú er spennan að magnast, er búin að gera klárt fyrir kvöldið...hvítvínið í ísskápnum, kjúklingabringurnar í marineringu og íslenski fáninn hér og þar um húsið.  Það er æðisleg tilfinning að vera með í úrslitunum, og ég held að okkur eigi eftir að ganga mjög vel í kvöld.  Þó við verðum í 25. sæti erum við samt sigurvegarar, því íslenski hópurinn hefur verið landi og þjóð til mikils sóma.

Ég lofaði nú spá um topp 10, og þegar ég reyndi að koma henni saman sá ég að þetta er hreint ekki auðvelt.  Það er mikið af góðum lögum og algjörlega ómögulegt að segja hvernig þetta raðast.  Ég reyndi þó:

1.  Úkraína
2.  Serbía
3.  Portúgal
4.  Svíþjóð
5.  Rússland
6.  Ísland
7.  Tyrkland
8.  Grikkland
9.  Króatía
10. Bosnía Herzegóvína

Ég held því miður að úkraínska Ani Lorak taki þetta í kvöld, en ég vona heitt og innilega ekki, ég er ekki alveg að gúddera þetta lag.  Atriðið er flott og ég held að það eigi eftir að skila henni sigri.  Ég held samt að enginn nenni að fara aftur til Kænugarðs....
Ég vona frekar að Portúgalir taki þetta, þeir eiga það sannarlega skilið eftir stórkostlegan flutning á fimmtudaginn.  Eða Serbía, æðislegt lag, það verður töfrum líkast þegar Jelena stígur á sviðið á heimavelli í kvöld.  Ég vona líka að Rússar drulli upp á bak í kvöld, ég þoli það lag ekki og ekki flytjandann heldur!

Svo gæti Ísland bara hreinlega unnið, eigum við ekki bara að trúa því?

ÁFRAM ÍSLAND og GÓÐA SKEMMTUN!

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 00:51:29 / hoffa

Stóru þjóðirnar fjórar og gestgjafinn....

 

Bretland – Stóru þjóðirnar 4 sem eru automatískt áfram í keppninni eru búnar að gefast upp og það hefur enginn áhuga á þessu í þessum löndum.  Bretar eru engin undantekning, en tefla samt fram sínu skársta framlagi í mörg ár.  Þetta er ekki gott, en bara nokkuð grúví fram að viðlaginu, sem er arfaslappt og drepur lagið alveg.:|

 

Þýskaland – Lélegt stelpnaband, og þýskt í þokkabót.  Þarf að segja meira?:evil:

 

Frakkland – Ég er alveg að fíla Frakka í ár, reyndar í fyrra líka!  Sebastien Tellier syngur lagið Divine, bráðskemmtilegt franskt furðufuglapopp.  Ef ég hefði heyrt þetta lag í útvarpinu og ekki vitað nein deili á því hefði ég haldið að þarna væri Barði Jóhannsson á ferðinni, þetta er alveg í hans stíl.  Mér líkar Barði og Bang Gang, og mér líkar Sebastien Tellier!:d

 

Spánn – Jæja.  Enn eitt grínið.  Nema bara að þetta er ekki fyndið.  Þetta er of lókal til að verða glóbal.  Mér finnst þetta ógeð.:evil::evil::evil:

 

Serbía – Serbar eru automatískt áfram sem gestgjafar.  Ég er ekki enn búin að ná sigurlaginu frá í fyrra (var alls ekki sátt), en þessu náði ég við fyrstu hlustun.  Jelena Tomasevic syngur undurfagra balkanballöðu, sem maður fellur jú nánast alltaf fyrir (Lejla, Lane Moje) .  Þetta er eiginlega næstuppáhaldslagið mitt, á eftir Tyrkjunum mínum.  Ég hef svosem ekkert meira að segja en bara frábært, já og kannski að Serbar verða í topp 3 í ár.:d:d:d

 

Jæja gott fólk, nú lýkur yfirferð minni á júrólögunum í ár.  Á morgun stefni ég á að koma með topp 10 spá.  Ég var með 9/10 á þriðjudaginn og 7/10 í gær, sem hlýtur nú að teljast þokkaleg getspeki!  Ég þakka samfylgdina, góða nótt.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 22:33:23 / hoffa

ÍSLAND! ÍSLAND! ÍSLAND!

Íslendingar, til hamingju með Júróvisjón-sigurinn í kvöld!

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 21:44:45 / hoffa

Seinni undankeppnin 22. maí - meiri rýni frá mér

 

Ísland – Ég er svakalega ánægð með lagið okkar.  Kosturinn við að senda svona góða flytjendur eins og Friðrik og Regínu er að maður þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af klúðri, þau eru alveg með þetta í vasanum og ég treysti þeim fullkomlega til að skila frábærum flutningi.  Ég hef meiri áhyggjur af myndvinnslunni hjá Serbunum, sem hefur víst ekki gengið nógu vel.  Ég er passlega bjartsýn á að komast áfram, maður hefur nú lært það á síðustu árum.  En andskotinn hafi það, þetta hlýtur að takast núna.  Ég segi bara áfram Ísland!  Og sama hvernig fer verð ég stolt af mínu fólki!:d:d:d

 

Svíþjóð – Selmubaninn Charlotte Perrelli er mætt á svæðið!  Og kaldhæðni örlaganna að hún skuli stíga á svið á eftir Íslandi.  Hún er með gott lag, sænsk gæði á þessu sko.  Ég var viss um að hún myndi vinna, en ég er aðeins farin að draga í land með það.  Hún verður í toppbaráttunni, en nær ekki sigri!  En ég er sátt við lagið engu að síður!:d:d:d

 

Tyrkland – Þá er komið að uppáhaldslaginu mínu í keppninni, rokkbandið Mor Ve Ötesi flytur lagið Deli.  Ég féll fyrir þessu um leið og ég heyrði það og sama hvað ég hlusta oft, finnst mér það alltaf jafngott!  Þetta band hljómar alveg eins og Manic Street Preachers, og syngja á tyrknesku, sem er bara töff....semsagt algjörlega minn tebolli!  Þessi keppni þarf á því að halda að svona góðu lagi gangi vel.:d:d:d:d:d:d

 

Úkraína – Diskólaginu Shady Lady er spáð sigri af mörgum júrónördinum.  Ég vona svo innilega að þeir hafi rangt fyrir sér, því ég þoli þetta engan veginn!  Þetta er stórlega ofmetið og ég verð bara örg af að tala um þetta.  Fer samt áfram...aarrrgggg....:evil:

 

Litháen – Vil ekki tjá mig um þennan viðbjóð.:evil::evil::evil:

 

Albanía – Lítið og svolítið sætt lag, sungið af 16 ára stúlkukind.  Þokkalegt, en ekki nóg kjöt á beinunum að mínu mati.:s

 

Sviss – Þessu lagi er spáð mjög góðu gengi.  Að mínu mati stórlega ofmetið.  Svo ekki sé minnst á hvað þetta er stolið.  Sænska barnastjarnan Amy Diamond – It Can Only Get Better.  Til að sanna mál mitt:  http://youtube.com/watch?v=Ogu0sd1fHNw    :(

 

Tékkland – Ég hef ekki orðaforða til að lýsa hryllingi mínum á þessu framlagi Tékka.:evil::evil::evil:

 

Hvíta-Rússland – Hallærisgaur hér á ferð sem syngur lagið Hasta La Vista.  Bara nafnið gefur manni kjánahroll.:(

 

Lettland – Næsta grínlag á dagskrá er sjóræningjalagið frá Lettlandi.  Lettar eru snillingar í að komast áfram á ómerkilegan hátt.  Hver man ekki eftir We Are The Winners (skandall) nú eða ítölskumælandi óperusöngvurunum í fyrra (líka skandall).  Það sama á eftir að gerast í ár, því viðlagið í þessu er nógu einfalt til að límast við heilann á manni eftir eina hlustun.  Líka af því að allir krakkar í Evrópu eiga eftir að taka upp gemsana sína og kjósa þetta villt og galið.  Að mínu mati á þetta heima í barnaþætti í lettneska morgunsjónvarpinu.  En þetta verður skandall, sanniði til.:(

 

Króatía – Undurfagurt tangólag hér á ferð.  Mér líður vel þegar ég heyri þetta.  Svo er líka svo skemmtilegt sing-a-long í lokin!  Ég vona bara að þeir geri ekki skrípaleik úr þessu á sviðinu, lagið stendur eins og það kemur fyrir og þarf ekki fígúrugang.:d

 

Búlgaría – DJ Take Me Away er ofursvalt og módern lag, ég fíla þetta í botn!  Hækkið vel í græjunum þegar þetta kemur!:d:d:d

 

Danmörk – All Night Long er ekki að ná mér.  Mér finnst þetta þunglamalegt, þreytandi, einhæft og flatt.  Að mínu mati slappasta Norðurlandalagið.:(

 

Georgía – Ég elskaði Georgíu í fyrra, en því miður ekki í ár.  Þetta er svosem í lagi, en ekkert sérstakt í gangi samt, hálfvelgjulegt orðið að kyrja friðarsöngva í þessari keppni finnst ykkur ekki?:(

 

Ungverjaland – Nei takk.:(

 

Malta – Þetta lag er með svo hröðu bíti að maður verður stressaður!  Maltverjar eru að reyna austurblokkardaður með því að syngja hástöfum um Vodka.  Þetta lag er bara ekki gott, og ég vona að þeim bregðist bogalistin.:(

 

Kýpur – Hún Evdokia Kadi syngur svakalega skemmtilegt lag á grísku sem heitir að vísu upp á frönsku Femme Fatale.  Flott rödd, spennandi lag í gamaldags laiko-stíl, og æðislegt tungumál!  Er samt hrædd um að ég sé ein af fáum sem finnst þetta æði og hún fari þ.a.l. ekki áfram.:d:d:d

 

Makedónía – Ég get ekki hlustað á þetta lag mér finnst það svo ömurlegt.  En af fenginni reynslu fer Makedónía áfram.  Þetta er þjóðin sem kemst alltaf upp úr undankeppni og drullar svo upp á bak í úrslitunum af því að lagið er ekki nógu gott.  Þoli þetta ekki.:evil::evil::evil:

 

Portúgal – Hún Vania syngur hér lag um stúlku sem horfir á eftir sínum heittelskaða í hafið.  Þetta er í portúgölskum fado-stíl, sem mér hefur alltaf fundist svakalega flott músík.  Vania er hörkusöngkona með rosalegan sviðspresens, og mér finnst þetta lag það besta sem Portúgal hefur sent í mörg ár.  Þetta gæti samt verið of þungt fyrir Evrópu að taka inn við fyrstu hlustun, þetta er a.m.k. 3ja hlustuna lag.  Ég vona samt það besta.:d:d:d

 

Þá er þetta komið!  Nú er erfitt að spá, þetta er ansi sterk keppni, en ég reyni.  Þau lög sem ég spái áfram:

 

Ísland:d

Svíþjóð:d

Tyrkland:d

Úkraína:evil:

Sviss:evil:

Lettland:evil:

Króatía:d

Makedónía:evil:

Búlgaría:d

Portúgal:d


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 22:04:05 / hoffa

Welcome Europe!

Jæja gott fólk, nú er fyrri undankeppninni lokið, og var hún ekki alveg nógu góð skemmtun, því miður!  Beogradska Arena var hálftóm, strákar hvað klikkaði?  Myndvinnslan hjá Serbunum var oft á tíðum ekki upp á sitt besta og lögin ekki nógu sterk, eins og ég hef reyndar vikið að áður.  Við skulum bara vona að Serbarnir verði búnir að hysja upp um sig buxurnar á fimmtudagskvöldið sem er jú aðal fyrir okkur hér á Fróni.

En hvað stóð upp úr í kvöld?
  
Óvæntustu atburðirnir:
Ísrael:
 hann Boaz heillaði mig hálfa upp úr skónum.  
Holland:  Hind skilaði mjög góðum performans.

Vonbrigði kvöldsins: 
Armenía:  Sirusho hrópaði lagið frekar en að syngja það og missti því svolítið marks fyrir mína parta.  Er mjög fúl að hún skuli ekki geta flutt þetta eins og manneskja því ég fíla þetta lag!
Belgía: að O Julissi skuli ekki hafa komist áfram!
Írland: að Dustin skyldi ekki hafa gert einhvern skandal á sviðinu!  Það á að notfæra sér aðstöðuna!
Rússland: Dima Bilan mistókst að heilla mig.  Ég fékk meira bara velgju heldur en hitt.

Drullað upp á bak í kvöld:
Slóvenía:
  Hvur andskotinn var þetta eiginlega?  Töluvert miklu meira en of mikið af hinu góða í gimmikk-ruglinu, og hvernig væri að æfa sig aðeins að syngja áður en maður fer að syngja fyrir landið sitt í Evrópusöngvakeppni?  Skamm skamm!
Andorra:  hvernig væri að róa sig í Gladiator- búningunum og einbeita sér að söngnum....humm og kannski að senda gott lag....
Grikkland:  sumir treysta meira á brókina sína heldur en sönghæfileikana....

Best Of í kvöld:
Bosnía Herzegóvína: 
Þetta lag er snilld og performansinn er snilld og búningarnir eru snilld og Laka og systir hans eru snillingar og keppnin á laugardag yrði ekki eins mikil snilld án þeirra.  Ég hef endalaust gaman af svona furðufuglum!
Noregur:  Hún Maria Storeng sýndi fágaðan og yfirvegaðan performans og hún á svo sannarlega skilið að vera í úrslitum.
Finnland:  Mér er svo ofsalega hlýtt til Finna, og mér finnst dásamlegt að þeir skuli hafa komist áfram með þungarokkslagi á sínu eigin tungumáli.  Kiitos!!!

En það er gaman að segja frá því að ég var með 9 af 10 rétt í spánni minni, nokkuð gott!  Nú er ekkert annað að gera en að bíða eftir fimmtudeginum, takk fyrir mig í kvöld!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 22:28:43 / hoffa

Fyrri undankeppnin 20. maí - rýni frá mér

Svartfjallaland – Góður söngvari hér á ferð en skelfilega púkó lag í alla staði. :(

 

Ísrael – Það er mikið lagt upp úr því að þetta lag sé eftir Dönu International sem sigraði fyrir Ísrael 1998.  Málið er að mér er bara alveg sama, það er alveg jafn leiðinlegt fyrir það.:(

 

Eistland – Eistar tefla fram fyrsta grínlaginu í ár, þau eru reyndar óvenju mörg þetta árið og hvert öðru verra.  Þetta lag er mjög slæmt, og flutningur Kreisiraadio á því er það vitlausasta sem ég hef séð.  Ég stend sjálfa mig stundum að því að lyfta öðru munnvikinu yfir þessu, en bara af því að þetta er svo ruglað.:s

 

Moldavía – Jazzlagið í ár.  Ég get ómögulega hlustað á það.:(

 

San Marínó – San Marineringar (gæti verið heiti á matvælafyrirtæki híhí) eru með í fyrsta sinn í ár og mér finnst þeir ekki vera að slá í gegn.  Þetta lag er bara of aumkunarvert.:(

 

Belgía – Nú erum við loksins að tala saman!  Belgar senda almennilega spilandi þjóðlagaband sem syngur á ímynduðu tungumáli, lagið heitir O Julissi.  Svakalega skemmtilegt, vel flutt og öðruvísi en allt annað í keppninni.:d:d:d

 

Aserbaijan – Aserar eru með í fyrsta skipti eins og San Marineringar, og eru með betra lag.  Það er kröftuglega sungið af tveimur fýrum sem dubba sig upp eins og engill og djöfullinn...þetta er ekki versta lagið í keppninni, en það vantar viðlag í það og mér finnst þeir gera aðeins of mikið af að reyna að toppa hvorn annan í söngnum.;)

 

Slóvenía – Þessi sápukúla er svona þokkaleg, en ekki alveg nógu litrík.  Ég vil fá Omar Naber aftur.;)

 

Noregur – Norðmenn eiga eftir að gera það gott í ár með henni Maríu sinni.  Hún syngur mjög gott lag í anda Adele, Amy Winehouse og Duffy.  Mjög flott og góður fílingur í gangi.:d:d:d

 

Pólland – Isis Gee er Kani, ekki Pólverji.  Hún syngur ballöðuna For Life sem er í anda Mariuh Carey og Disney teiknimyndanna.  Þetta er tónlistarstefna sem ég þoli ekki, og ég velti því stöðugt fyrir mér hvort Isis sé virkilega kvenmaður, þið skiljið hvað ég á við.:(

 

Írland – Brúðukalkúnninn Dustin keppir fyrir Íra í ár.  Ég er einlægur aðdáandi Prúðuleikaranna, en þessi kalkúnn er mér ekki að skapi.  Mér finnst hann ekki fyndinn, heldur bara frekar pirrandi og leiðinlegur.  Lagið og öskrin eru enn meira pirrandi.  Já þetta pirrar mig bara mjög mikið.  Nema þegar hann öskrar “COME ON!!!!”, það er pínu fyndið.:evil:

 

Andorra – Mér hefur oft líkað við lögin frá Andorra, en þeim bregst bogalistin í ár með sápukúlupopplaginu Casanova.  Of einfalt, fyrirsjáanlegt og ófrumlegt.:(

 

Bosnía og Herzegóvína – Ég elska þetta lag!  Er þetta grín?  Er þetta list?  Hver veit?  Þetta er allavega snilld og hefur mig alveg í vasanum.  Furðufuglinn Elvir Lakovic er hér á ferð ásamt að mér skilst systur sinni sem er svo túberuð að annað eins hefur ekki sést.  Þau fara alveg hamförum á sviðinu með skemmtilega leikmuni og leikræna tilburði.  Lagið sjálft er líka frábært!:d:d:d

 

Armenía – Hin armenska Sirusho gerir góða hluti í ár með laginu Qele Qele, sem ég er mjög hrifin af.  Þjóðlegu áhrifin klikka ekki.  Ef hún stendur sig á sviðinu gæti hún auðveldlega náð topp 5 í úrslitunum.:d:d:d

 

Holland – Ég hef nú sjaldan hrifist af hollensku lögunum, og þetta lag er svosem engin undantekning.  Það má samt alveg vera þarna og ég hef heyrt það verra frá Hollandi.  Gerir samt engar gloríur.;)

 

Finnland – Mér er alltaf hlýtt til Finna.  Þeir eru búnir að fara allan skalann í straumum og stefnum í júró, en núna láta þeir aftur slag standa með þungarokki, á finnsku í þokkabót.  Mér finnst Hard Rock Hallelujah nú betra lag, en þetta er hressandi innan um allar poppskvísurnar.  Missa Miehet Ratsastaa!:d

 

Rúmenía – Þetta er svona ofurgamaldags lag sem er skrifað nákvæmlega eftir formúlunni, sungið af konu og karli sem halda að þau séu Mariah Carey og Andrea Boccelli.   Að sjálfsögðu alls, alls, alls ekki minn tebolli.:(

 

Rússland – Sjarmatröllið Dima Bilan er mættur aftur á svæðið eftir að hafa tekið 2. sætið árið 2006, og lagið í ár er ekki með tærnar þar sem hitt hafði hælana.  R&B höfðar mjög sjaldan til mín.  Kannski gerir heimsfrægi skautadansarinn það sem verður með Dima á sviðinu.  Rússar komast samt áfram.:s

 

Grikkland – Kalomira hin gríska getur ekki sungið, en hún er á brókinni og það eitt kemur henni áfram í úrslitin.  Þetta lag er mjög nútímalegt með grísku ívafi, svolítið eins og My Number One um árið, en það var miklu betra lag og Paparizou svakalega góð.  Það er eyðilagt með lélegum og tilbrigðalitlum söng og alltof einhæfu viðlagi.:(

 

Já, eins og sjá má er ég ekkert alltof ánægð með fyrri undankeppnina, það er bót í máli að sú seinni er miklu betri.  Reyndar verra fyrir okkur þar sem við erum í miklu harðari keppni!  En þetta eru lögin sem ég held að fari áfram, hvort sem mér líkar betur eða verr:

 

Armenía, Bosnía & Herzegóvína, Noregur, Rússland, Finnland, Azerbadjan, Grikkland, Rúmenía, Pólland, Írland.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 19:35:00 / hoffa

Fyrsta æfing fyrir stóra kvöldið

Friðrik og Regína áttu fyrstu æfingu í Serbíu í dag, og stóðu sig að sjálfsögðu eins og hetjur.  Svona litu þau út á sviðinu:

http://www.youtube.com/watch?v=adX6UImDp00&eurl=http://esctoday.com/news/read/11364

Og í áttina að þessu kemur atriðið til með að líta út í sjónvarpstækjunum okkar í næstu viku:

http://www.youtube.com/watch?v=EfRKDsM-E5o

Þetta verður ótrúlega flott hjá þeim, ég fæ gæsahúð af þjóðarstolti!  Áfram Ísland!

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 23:11:42 / hoffa

Eurovision á næsta leiti.....

.....og er þá ekki kominn tími til að endurvekja þetta blogg?  Það verður gert á allra næstu dögum!

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 22:17:19 / hoffa

UUUUUUU já.....ekki enn í Skotlandi.....

Þetta er rosalega aktíft blogg.....bæti úr því á næstunni.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 19:55:11 / hoffa

A piper is down. I repeat: A piper is down!

Nú erum við loksins komin með tengingu á tölvuna okkar.  Við fórum semsagt frá Carlisle í gær og vorum svo óhemju sniðug að kaupa okkur miða á fyrsta farrými í lestinni.  Umm það var yndislegt.  Erum semsagt í Edinburgh í Skotlandi og Skotarnir eru hressir.  Hér er Edinborgarfestivalið í gangi þannig að það er ekki að þverfóta fyrir fólki, allstaðar er fólk, það er dálítið heftandi að geta ekki farið neitt án þess að bíða í hálftíma í biðröð, og það er hreinlega erfitt að labba hér um götur.  En borgin er heillandi engu að síður, gömul, háreist og falleg.  Í dag fórum við í sightseeing og það var fínt, hefði mátt vera betra veður, hann hefur svona rétt hangið þurr í dag.  Ætlum í Edinborgarkastala á morgun og svo verður farið að huga að heimferð, við fljúgum til Köben á fimmtudagsmorgunn og í Egilsstaði á föstudagsmorgunn, verðum lent þar um hálfníu. 

Við erum á hóteli sem heitir Hotel Ceilidh-Donia, borið fram Hotel Kaylee Donia, og slagorðið er Welcome to the Hotel Ceilidh-Donia, such a lovely place, such a lovely place....þið vitið eins og í Eagles laginu.....ekki laust við að vera pínu hallæri.....en allavega, við vorum að koma upp á herbergi eftir unaðslega máltíð hérna á hótelveitingastaðnum, höfum ekki fengið svona gott að borða í 3 vikur, lamb með kartöflum og grænmeti og svo fengum við okkur syndsamlega eftirrétti jömmó! 

Minjagripabúðirnar hérna eru ekkert annað en magnaðar, maður gjörsamlega tapar sér.  Ég náði engan vegin að hemja mig og keypti mér skoska herðaslá með keltneskri nælu.  Þröstur náði ekki að hemja sig í hljóðfæraverslununum, hann var alvarlega að spá í að kaupa sér sekkjarpípu, en hætti snarlega við þegar hann sá ukulele og banjó......já hann keypti sér banjó.

 Ætlum að henda inn nokkrum myndum í albúmið......

Já og Aðalsteinn Ólafsson fær innilegar hamingjuóskir með árin 30.


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 13:04:54 / hoffa

British Freshwater Fish

Rigning.  Thad er grenjandi rigning.  Vid getum svo sem ekki kvartad, thetta er ekki nema 3. rigningardagurinn, sem er ekkert vodalega mikid i thessu landi vatnsvedranna.

Vid forum a helviti skemmtilegt safn i Keswick, thad heitir The Puzzling Place.  Tharna er samansafn af hinum ymsu sjonhverfingum og furdulegheitum.  Vid gleymdum ad segja fra fitusnum sem var a stridsminjasafninu i Manchester, thar voru fullt af svona stodvum thar sem madur atti ad leysa thrautir og svona tengdar stridunum, og a einni voru 3 stutar sem madur atti ad thefa af og giska svo a hvada lykt thetta vaeri, allar tengdar lifinu i skotgrofunum.  Svo birtist svarid undir svona flipa.  Eg rauk i verkid og byrjadi ad nusa eins og halfviti, og atti mer einskis ills von.  Fyrsti stuturinn var hreinraektud tafyla, i alvorunni, smelly toes, ojojoj, naesti var byssupudur og thridja var sinnepsgas og tha kugadist eg, og vid hlogum eins og vitleysingar, hverjum dettur i hug a setja tafylu a safn?  Aetli their seu med svona mann a bakvid tjoldin sem skiptir aldrei um sokka og liggur svo hinum megin vid vegginn med lappirnar i stut og faer borgad fyrir hehehe!

En nog um thad, vid erum bara i Carlisle og vitum ekki alveg hvad vid eigum af okkur ad gera i rigningunni, forum i bio i gaerkvoldi a Bourne Ultimatum og hun var agaet, en Tjallarnir kunna ekki ad poppa, og thad er omogulegt ad fara i bio an thess ad guffa i sig poppi og koki.  Vid forum i bio i Keswick lika og thar var bara haegt ad fa karmellupopp, thvilikur othverri, Bretinn er stundum svolitid vitlaus.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10